Saturday, February 26, 2005

....jahérna hér.... bara bloggað daginn eftir fyrsta bloggið!!!! Þetta lofar bara góðu:) Vill bara afsaka fyrirfram að þetta verður örugglega ekkert skemmtilegt blogg og neinar miklar heimspekilegar hugleiðingar eins og hjá öðrum bloggurum sem ég þekki. Aðallega hugsað svona fyrir fjölskyldu og vini sem að vilja svona nokkurn veginn vita hvað maður er að gera hérna í Ameríkunni. Eins og þið sjáið á fyrirsögninni á blogginu þá er þetta blogg einnig Ómars (ég veit, frekar hallærisleg fyrirsögn en mér datt bara ekkert sniðugt í hug). En einhvern veginn segist mér hugur um að Ómar eigi ekkert eftir að blogga neitt mikið þannig að þið verðið bara að þola bullið í mér.
Annars höfum við það bara ágætt hérna. Ég er nýbúin að skipta um vinnu og líkar bara vel. Ég er að gera alveg það sama og áður, sem sagt vinna með einhverfum börnum, en bara hjá öðru fyrirtæki. Ómar er loksins hættur hjá Home Depot og þarf sem sagt ekki að syngja búðarsönginn klukkan 4 á sunnudagsmorgni eins og hann þurfti að gera einu sinni í mánuði .... Hann fékk vinnu í listagalleríinu í skólanum sem er alveg ábyggilega skemmtilegri vinna fyrir hann. Það er líka minni vinna og svo getur hann líka lært eitthvað á meðan.

Svo maður sé nú alveg ekta íslendingur þá verða líka að koma smá veðurfréttir. Undanfarið er búið að vera svona um 15 til 20 stiga hiti og svona rigning annars lagið. Samt ekkert á við í suður Kaliforníu þar sem allt er á floti. Að vísu kom svona hvirfilbylur á nokkrum stöðum hérna í næstu hverfum í vikunni og rifu upp trukka og tré, en ég varð náttúrulega ekki var við neitt eins og vanalega.

Var að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna mína.... það er nú meiri dugnaður í stelpunni hljótið þið að hugsa...... þetta eru reyndar bara myndir síðan úr Íslandsferðinni, er bara ekki með neitt nýrra. Maður er svo voðalega lélegur að taka myndir nú orðið. www.picturetrail.com/ragnalaufey

Bæjó,

Ragna

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hæ elskan!
Gaman að fylgjast með, hringi samt í kvöld og tala kannski minna en 2 tíma eins og síðast. Vertu viðbúinn samt. Flottar myndir.
Ástarkveðja
Mamma og pabbi

Sunday, February 27, 2005 4:28:00 AM  
Blogger Hjördís said...

Til lukku með þetta Ragna!

Auðvitað verður þú alveg hörkudugleg við að uppfæra, verður bráðum alveg háð þessu held ég! :)

Kveðja úr snjónum í Uppsala...

Sunday, February 27, 2005 11:12:00 AM  
Blogger Helen said...

Jæja það hlaut að koma að því! Til hamingju með nýju síðuna og ég hlakka til að fylgjast betur með ykkur.
Kveðja, Helen

Sunday, February 27, 2005 11:54:00 AM  
Anonymous Anonymous said...

Frábært´hjá þér að stofna bloggsíðu, búin að setja hana í favorites og kíki á hana oft á dag. bestu kveðjur Ragnhildur

Monday, February 28, 2005 12:13:00 AM  
Anonymous Anonymous said...

buy tramadol with paypal tramadol hcl vs vicodin - tramadol 50 mg online pharmacy

Monday, November 12, 2012 2:58:00 PM  

Post a Comment

<< Home